Þá er rúmlega vika þangað til ég kem heim og mér er farið að hlakka alveg þokkalega til! Fyrst og fremst að komast í herbergið mitt sem er sérhannað chillplace ala Viggi...aaaa SWEET :)
Og auðvitað að hitta familíuna og vitleysingana sem ég kalla vini mína hehe
Skúli fór 2 vikum fyrr heim svo að ég er bara búinn að vera einn að chilla hérna og æfa en þetta eru bara 2 vikur svo að ég er bara að einbeita mér að æfingunum og er búinn að vera á frekar stífu mataræði síðustu 2 vikurnar. Borða bara hrísgrjón á morgnana og hádeginu og kjúlla á kvöldin og drekk 6-8 lítra af vatni á dag sem er frekar einhæft en hrísgrjónin eru drullugóð hérna úti svo að þetta er reyndar ekki eins hellað og ég hafði gert ráð fyrir.
Æfingarnar eru búnar að ganga vel hérna úti er að æfa með fullt af góðum fighterum sem eru að slást professionally og þjálfurunum finnst greinilega mjög gaman að láta mig slást við alla HUGE gaurana hérna sparraði við Bas um daginn sem er 190 cm útúr HGH-aður andskoti frá Belgíu allur útí tribal tattoo-um með mohawk og er með nickneimið "the mercenary" herna uti, slapp reyndar nokkuð vel frá því sparri. Svo í síðustu viku var það norsarinn Jakob sem er professional MMA fighter og er meðal annars nýlega búinn að slást við Michael Bisbing sem vann Ultimate Fighter raunveruleikaþáttinn um daginn. Ég slapp ekki vel frá því sparri var laminn í köku tók t.d. 6 shinkick og 2 hnéspörk beint í rifbeinin og 2 shinkick í smettið svo að þið getið ímyndað ykkur hvað ég var sætur eftir það hehe.
Svo í gær sparraði ég við 100 kg pro kickboxarann Freddie frá Hollandi sem mér finnst vera frekar klikkaður og hann var ekkert að taka létt á því en mér gekk reyndar mjög vel á móti honum svo að æfingarnar eru greinilega að skila sér!
Fékk mér tattoo fyrir 2 vikum síðan sagan á bak við það hvernig mér datt það í hug er reyndar totally gay en ég ætla samt að segja hana...sá mynd af Justin Timberlake á netinu um daginn úr myndinni Alpha Dog og fannst tattoo-ið sem hann var með á síðunni(rifbeinunum ekki heimasíðu) sinni geðveikt töff og ákvað að fá mér eitthvað svipað. Ég talaði við Oh (sem er svona eins og Stebbi í vaxtarlaginu bara með 10 sinnum meira 6 pack en hann) sem er þjálfari niðurfrá og einnig geðveikur tattoo-artist og segi honum hvernig tattoo ég vildi fá s.s. kínverskt tattoo sem þýddi eitthvað í líkingu við "born to fight". Hann bara ok segist ætla að redda þessu því að hann þekkti kínverska fjölskyldu sem hann gat talað við og svo myndi hann kíkja til mín í hádeginu á sunnudeginum og sýna mér hvað hann kom með og ef mér litist á það þá myndi hann bara tattoo-a mig í bungalowinu mínu.
Hann sagði mér ekki að detta í það og að ég ætti að vera búinn að borða um morguninn svo að ég hefði orku í þetta. Snillingurinn sem ég er datt náttla feitt í það og vaknaði tíu mínútur í tólf vængefið þunnur og var ekki beint að meika það að fara að láta pota nál í rifbeinin á mér næstu 2-3 klukkutímana. Oh mætir á svæðið og sá ástandið sem ég var í og brosti alveg sínu breiðasta, greinilega að fíla það að hann væri að fara að pynta mig í drasl. Mér var reyndar alveg drullusama fannst þetta bara fyndið og lagðist uppí rúm og setti ipodin í eyrun á mér og reyndi að halda kúlinu á meðan þessu stóð. 2 ½ tíma seinna var þetta komið og leit drulluvel út..."Top Fighter Born To Fight"...mér finnst það töff ef þið fílið það ekki þá quata ég í Cartman "well pardon my french but you can suck my big, fat, hairy balls" ;)
Eftir þetta fór ég beint á McDonald´s og borðaði 5 ostborgara sem var megasweet :D
Daginn eftir að Skúli fór þá kom Hilli og 2 félagar hans þeir Svenni og Óli sem eru alveg eðalgaurar og auðvitað leigði Hilli svítu á 5 stjörnu hóteli. Hann var búinn að tala við mig og segja mér að kíkja á þá svo að ég nennti ekkert að æfa þann daginn fór bara beint til Patong að chilla með þeim við sundlaugarbakkann í "infinity" lauginni. Ég fór síðan með þá á Sam´s Grill um kvöldið sem er klárlega með bestu steikurnar í Patong og lá í hláturskasti allan tímann á meðan Hilli var að segja mér frá hlutunum sem þeir höfðu lent í síðustu tvær vikur sem var vægast sagt allur fjandinn! Þeir voru samt ekki að meika að djamma því þeir voru að fara heim daginn eftir svo að það er ekki mikið frá því að segja það var samt geggjað að hitta aðra Íslendinga, er kominn með nett fráhvarfseinkenni hérna úti!
En yfir í eitthvað annað ég fór í mallið í síðustu viku til að láta krúnuraka mig og fór inn á hárgreiðslustofu sem mér leist nokkuð vel á því að það var ein skuggalega heit stelpa að vinna í afgreiðsluborðinu. Ég bið um klippingu og fer og sest í stólinn og bíð eftir að hún kemur og klippir mig en neinei þá kemur einhver fokkljótur ladyboy og krúnurakar mig sem að var ekki að gera sig! Hann/Hún stóð sig samt vel þetta var gæða krúnurökun sem fór fram þarna.
Ég kynntist líka einum Ástrala sem var að koma í æfingarbúðirnar sem er alveg eitur svalur en þetta væri nú ekkert merkilegt nema fyrir utan það að hann sagði mér að hann væri að deita gelluna sem lék erobik kennarann í "call me" myndbandinu játsssss. Síðan sá hann um kvikmyndalýsinguna í Matrix myndunum og nýju Star Wars myndunum sem er mjög töff.
Tæland snilldarland þetta er eins og einhver draumaheimur þú getur gert hvað sem er hérna svo lengi sem þú átt pening fyrir því. Ég á bara engann pening þessa dagana svo að ég get ekki gert mikið nema borðað ódýran/geðveikan tælenskan mat, æfa allan daginn og fer í spa-ið þegar ég vill láta stjana við mig...hver getur kvartað yfir því hehe. Var einmitt að koma úr 2ja tíma thai massage og saunu svo að ég er góður á því núna m´lady.
Það er reyndar eitt sem ég hata hérna úti það er löggan hérna þetta eru algjörir hálfvitar! Ég var fyrst sektaður fyrir mánuði síðan fyrir að vera ekki með ökuskírteini á mér og þurfti að skilja vespuna mína eftir og taka taxa niðrá löggustöð og borga sektina, viku seinna þá er ég sektaður fyrir að vera ekki með hjálm og lenti í sama pakka, viku eftir það var ég stöðvaður og ég var bæði með hjálm og ökuskírteini en neinei þá er skoðunarmiðinn á hjólinu útrunninn þ.e.a.s. hann rann út fyrir 2 dögum síðan svo ég fékk sekt fyrir það....fokkinggggggggggg totthausar!!!
Ég kíkti á ströndina í dag með nokkrum gaurum úr campinu og þeir voru að segja mér að það dó einhver gaur á jetski í síðustu viku niðrí Patong og honum var bara hent í einhvern ruslabíl sem var að keyra framhjá svo að ég er pottþétt ekki að fara á jetski áður en ég kem heim hehe.
Anyways elska ykkur öll sem lesið þetta blogg sjáumst um verslunarmannahelgina helluð á því eins og alvöru Íslendingum sæmir!
Btw annad blogg fyrir nedan ef ad tig tokud ekki eftir tvi!
Djana
20. júlí 2007 klukkan 13:37
Vignir Ingi Bjarnason Engin athugasemd
Tetta er soldid gamalt blogg tvi eg gleymdi hvad notendanafnid mitt var but here it is!
Whatup partypeople!
Þá er ferðin hálfnuð hjá manni og ég er vægast sagt orðinn alvarlega steiktur í hausnum á að vera hérna. Fyrst þegar maður kom hingað þá var maður mikið að pæla í skordýrunum en núna er mér orðið alveg drullusama. Það búa 2 eðlur í íbúðinni minni og ég leyfi þeim bara að vera þarna þær drepa alla maurana í staðinn og síðan er ég alltaf að fokka eitthvað í þeim. Var t.d. í sturtu áðan og ein eðlan var að chilla á veggnum og ég byrjaði að sprauta hana í drasl man that was funny...hmmmm yeah :D
Drap líka eina köngulóna sem lék í"Eight Legged Freaks" í síðustu viku sem var inná klósettinu mínu eða hún var allavega svipað stór og ein af þeim man that fucker was huge.
Fórum 10 saman til Phi Phi Islands um síðustu helgi að skoða eyjarnar þarna og taka gott djamm á þetta. Þetta var án efa flottasti staður sem ég hef séð þ.e.a.s. eyjarnar en djammið saug alveg feitann ekkert nema fullt af hippy euro trash þarna á þessum tíma. Það kom samt ekki í veg fyrir að maður skemmti sér maður er vanur þessu á Íslandi svo að ég og Skúli vorum alveg "hammered" þarna á kantinum.
Ég er líka búinn að komast að því að það er ekki hægt að vera léttur á því þegar maður er að djamma með Skúla. Gaurinn fer á barinn og kemur með 30 tekílaskot tilbaka og hann drekkur ekki einu sinni tekíla sjálfur...snar. Á laugardagskvöldinu vorum við öll orðin blekuð á einhverjum strandbar þarna og Skúla var bannað að fara á barinn því í hvert skipti sem hann fór þá kom hann með tonn af skotum og bjórum tilbaka sem ég hafði persónulega ekkert á móti en allavega hehe.
Leigðum okkur snekkju á laugardeginum og kíktum í skoðunarferð um eyjarnar og stoppuðum á nokkrum stöðum og köfuðum þar. Veðrið var alveg brjálað til að byrja með en svo varð það bara betra og betra með tímanum. Ég hafði aldrei snorklað áður og fyrsti staðurinn sem við stoppuðum á þá voru öldurnar alveg brjálaðar. Ég sting mér á kaf og fer að synda með fiskunum og gefa þeim banana að borða og blablabla allt frábært voða fallegt allt milljón fiskar í regnboganslitum að borða úr hendinni þinni fyrir utan það að ég var að svelgjast á svona ½ lítra af vatni í hvert skipti sem ég reyndi að anda því að það komu alltaf einhverjar öldur yfir helvítis öndunarpípuna mína þegar ég var á kafi. Eftir svona korter þá var ég bara "ok fuck it ég er farinn tilbaka" því ég var bókstaflega að kafna þarna og lít upp og þá er báturinn alveg heavy langt í burtu. Ég byrja að synda eins og mofo og var orðinn soldið smeikur því að ég var liggur við að drukkna þarna svo að ég veifaði þeim á bátnum og öskraði "hey get me out of here" eins og algjör plebbi. Þá kom einhver gaur á kajak og pikkaði mig upp...ég held að ég þurfti að fara með Stebba á sundnámsskeið niðrí Kópavogslaug þegar ég kem heim díses kræst!
Allavega ég er búinn að vera fucked æfingarlega séð síðustu 2 ½ vikuna þar sem ég fékk einhverja brútal sýkingu í sárin á löppunum á mér og fór uppá spítala og læti og þurfti að taka því rólega í millitíðinni. Ég held að djamm með Mr.Ég get ekki farið á barinn og keypt mér minna en 30 drykki í einu(Skúli) og að drukkna næstum því á Phi Phi hafi ekki verið hluti af að taka því rólega en hvað getur maður gert maður hefur ekkert annað að gera hérna ef að maður er ekki að æfa allan daginn.
Ég er líka búinn að smitast af tattoo menningunni hérna úti það eru allir með tattoo hérna þetta er rugl. Sérstaklega niðrí gymminu mínu þar er allt morandi í snarbiluðum muay thai og MMA fighterum sem eru allir tattoo-aðir í drasl.
Þetta eru reyndar allt snillingar sem eru að æfa og þjálfa þarna niðurfrá. Muay thai þjálfararnir búa allir á æfingarsvæðinu í einhverjum kofum þarna og ég hélt að þetta væru algjör hreysi en þegar ég kom inní þetta þá voru þeir allir bara með 50´ LCD sjónvarp, risa ísskáp og læti inní þessum kofum. Síðan eru margir af þeim alltaf freðnir á kvöldin það er alveg fáranlega fyndið að vera að rugla í þeim þá. Er líka búinn að kíkja á djammið með 2 aðal þjálfurunum/fighterunum þarna þeim Nazi og Sao-Hin það var ábyggilega, ég ætla ekki að segja það besta en það var eitt klikkaðasta djamm sem ég hef tekið snarruglaðir gaurar maður!
Síðan kann enginn Tælendingur ensku hvað er málið með það. Ég og Skúli fórum að borða um daginn á einhverjum stað og Skúli biður um "cheeseburger" og gellan var engann veginn að fatta hvað hann væri að biðja um þó svo að ég væri að útskýra og leika cheeseburger mjög vel alveg quality actionary í gangi þarna. Síðan á endanum kemur einhver gaur þarna og segir gellunni hvað við vildum og hún eitthvað "a yes....cheeburger"....god damn thai retards.
Suck my balls
20. júlí 2007 klukkan 13:34
Vignir Ingi Bjarnason Engin athugasemd
Hello my beautiful friends! Jæja þá er maður búinn að vera hérna í Tælandi í 3 vikur og þetta er í einu orði sagt búið að vera sweet! Ferðalagið gekk bara vel vorum að ferðast í 36 tíma svo að maður var alveg búinn á því þegar maður kom þangað og maður var með alveg netta flugþreytu fyrstu dagana hérna en núna er þetta fantastic m’lady. Æfingarnar hérna eru algjör geðveiki við komum á fimmtudagskvöldi og tókum síðan 2 æfingar á laugardeginum og vorum alveg hellaðir á því daginn eftir svo að við ákváðum að taka bara eina æfingu á dag til að byrja með á meðan maður er að venjast þessu hérna. Hver æfing er samt 3 klukkutímar svo að það er ekki eins og maður sé eitthvað bitch ;) Morgunæfingarnar eru þannig að við byrjum á því að hlaupa 6 km í upphitun og síðan tekur við 2 ½ tíma púl dauðans! Seinni æfingarnar eru samt erfiðari því að þá er alveg 30-35 stiga hiti úti og maður getur ekki kælt sig niður neinsstaðar, þarft bara að þrauka þetta and take the pain. Það var frekar fyndið komum á fyrstu æfinguna og áttum að sippa og ég og Skúli héldum að það væri ekkert mál því að við gerum það alltaf fyrir æfingar heima en neinei fáum alveg heavy þung sippubönd ábyggilega svona 10 sinnum þyngri en venjuleg sippubönd og sippuðum síðan í 15 mínútur án þess að fá pásu svo að maður var alveg dauður í handleggjunum. Síðan fokkuðu þeir okkar alvarlega upp á æfingunni. Maður drekkur líka svona 4 lítra á hverri æfingu svo að maður er ekkert að svitna lítið hérna! Erum búnir að fara 2 síðustu föstudaga niðrí Patong, sem er aðaldjammstaðurinn hérna, á fight night þá er fullt af muay thai bardögum þarna fokking brútal stöff maður! Það voru 7 gaurar frá campinu okkar að slást þarna um daginn svo að það fóru allir að horfa á og síðan var massíft djamm eftir á. Ég ætlaði að vera edrú but well you know that old chezznut endaði með því að hrynja í það hehe. Fórum á vængefnasta stað sem ég hef farið á hét Suzy Wong’s maður kom þarna inn og þú fékkst prik úr frauðplasti eða eitthvað sem að þú gast lamið stripparana þarna með. Ég var náttla í ruglinu og fór uppá svið og var að dansa við stripparanna og berja þá með þessu stöffi og þeir voru að berja mann í köku með þessu það var hellað fyndið. Síðan á mánudeginum eftir það var sparræfing í MMA og þá vorum við bara með legghlífar, góm og grifflur og svo voru bara venjulegar MMA reglur maður mátti reyndar ekki nota olbogana en annars var allt annað leyfilegt. Ég endaði með semí glóðurauga og marinn rifbein en þetta var samt geðveikt gaman miklu skemmtilegra að slást svona heldur en að boxa með 14 oz hanska og grímu :) Dagarnir hjá mér eru samt orðnir nokkuð reglubundnir núna, morgunæfing-éta-sofa eða sólbað-seinni æfing-éta-nudd og spa dega dega. Anyways ég gæti skrifað heila bók um hvað maður er að gera hérna, í stuttu máli þá eru strendurnar geðveikar hérna, fáranlega heitt, djammið er rugl þetta er eins og að vera í einhverjum dýragarði allt morandi í hórum og ladyboys, geðveikt mikið af Billabong á útimörkuðunum sem er awesome og æfingarnar eru fokking killer :D Kveð að sinni Later bra’s go with Christ
05. júní 2007 klukkan 16:04
Vignir Ingi Bjarnason 3 athugasemdir
Góða kvöldið kæru gestir...gleðilegt nýtt sumar og farsæla komandi rigningu og slagviðri....á ég að vera ógeðslega hip og kúl og tala um brunann í miðbænum? nei ég er ekki gay...gæti ekki verið meira sama...og það vita líka allir af brunanum og af hverju ætti ég þá að tala um hann...damn it ég er byrjaður að tala um hann...anyway...fyrir viku síðan var ég í manchester (takið efitr að ég skrifa manchester með litlum staf af persónulegum ástæðum) að drekka áfengi og horfa á fótbolta....horfði líka að kvennfólkið þarna....og eins graður og ég er þá voru kannski 3 stelpur í 3 milljóna manna borg sem ég myndi mögulega sofa hjá......ok fine!! Þær voru kannski 489 sem ég myndi sofa hjá....en pointið er að breskar stelpur klæða sig allar einsog þær séu Jessica Alba heitar þó svo að þær líti út einsog Ingibjörg Sólrún og Austantjaldskellinginn sem býr á þriðju hæðinni og er með fæðingablett á stærð við Álftanes á miðju andlitinu og er by the way loðnari en Hugó Rasmus (man einhver eftir honum?)....í flegnum magabol....takið ykkur 5 mínútur og pælið aðeins í því...
En yfir í aðra sálma...ég vil að allir biðji til guðs um að HK verði meistari yfir Íslandi í handbolta....einnig vil ég minna menn á að það styttist í íslandsmeistarmótið í knattspyrnu og HK þarf á stuðningi allra sem kalla sig Hk-inga í sumar...fjölmennum í nýju stúkuna....
Búri mælir með:
Incubus Nýju Kings of Leon plötunni Quiznos- Miðstærð af hunangbeikon-tvöfald kjöt...oohhh swweeeeeet Hnoði- Hnoð er lífstíll
Annars óska ég ykkur bara góðs gengis í lífinu og njótið helgarinnar
Kv Búri
21. apríl 2007 klukkan 20:42
Halldór Ţór Halldórsson 4 athugasemdir
Jæja þá er kominn ný síða í heiminn...nokkurskonar dóttirsíða Legends.is þar sem hún fór til fjandans ad einhv erji ástæðu...margt merkilegt hefur komið fyrir á þessum tíma bloggleysis af okkar hálfu og má þar helst af öllu nefna tónleika bestu hjólmsveitar í heiminum..forever...auðvitað á ég við Incubus...þessir tónleikar verða aldrei gleymdir enda ekkert nema fullnæging í formi tónlistar....
Annars er fullt annað að frétta af okkur..Vignir er að fara til Tælands í byrjun sumars til að læra að lemja fólk ógeðslega fast og æfir sig á ofurölva fólki á players á meðan
Viktor er langbestur á Íslandi í fimi og varð nýlega íslandsmeistari 48.skiptið í röð og er á leiðinni til Evrópu að sýna þeim hvernig maður á að hanga í hringjum og hoppa á bogahesti
Stefán er fallegur að vanda og æfir fótbolta af kappi og skreppur til keflavíkur í frítímum sínum
Finnur er ennþá fallegri og æfir fótbolta af en meiri kappi...kærastan hans er einnig fallegri og er að keppa í íslandsmeistaramótinu í fegurð í Reykjavík endilega kjósið hana á netinu
Af mér sjálfum er það að frétta að ég er að fara til Manchester næstu helgi á alþjóðalega typpasýningu þar sem ég verð með bás um typpið mitt
Annars er þetta komið nóg í bili..skrifa örugglega fljótlega aftur en ég er bara ennþá að jafna mig eftir páskana af einhverji ástæðu...þeir legendar sem vilja joina okkur og skrifa á þessari síðu eru velkomnir...
Kveðja, Búri
09. apríl 2007 klukkan 16:26
Halldór Ţór Halldórsson 6 athugasemdir